
já það verður að segjast einsog er ....letin er að drepa mig hérna

en það er bara svona...nammiskortur að segja til sín held ég

ég ætti að vera úti að moka sand af götunni sem vörubílstjóri sturtaði hérna fyrir framan innkeyrsluna

ekki alveg toppstaður en ég átti greinilega að fjarlægja þetta einn tveir og snell...en bíti hann í sig og það fast

ég er að verða búin að fylla sandkassan en það er 2x meira sem bíður eftir að verða flutt

það bíður bara þar til á morgun....segir sá lati

Það er allt í fína að frétta héðan og ekki að gera sig þetta hraðtímabil sem er í gangi

ef þið skilduð ekki vera búin að uppgötva það að þá er 1.okt eftir viku

shitt og þá er nú ekki langt í jólin skal ég segja ykkur....eiginnilega mjög stutt svo ef þið ætlið að gefa jólagjafir þá hedl ég að þið ættuð bara að fara í gang...ekki seinna en á morgun

Það gengur fínt hjá öllum á þessum bæ, Sigubjörg er með mestu fréttirnar...allavega talar hún mikið en það eru ekki margir sem skilja hana

svo er hún farin að skríða hér á túrbógírnum og er farin að æfa sig að standa upp með öllu svo friðurinn á heimilinu er úti

allt í hers höndum

Katrín mín boksar bara og stundar sinn skóla...en er farin að vera dálítill unglingur

mamma nei ég fer ekki í nærföt með blúnduköntum!!! (of sexy í hennar stærð)
Jónsi minn fatinn að taka á sig teikniverkefni...einsog hann hafi ekki nóg að gera í skólanum

en smá áskorun á hann og svo auðvitað smá monníur í vasan

alltaf hægt að nota þær....
Og svo fer ég að fá mín fyrstu fullu laun í langan tíma

og hlakkar mig MIKIÐ til

verð örugglega búin að eyða hverri krónu innan viku

Á meðan ég man eftir þvi sem ég á eftir að gera.....ætla ég að gera það núna svo ég bið að heilsa...Góða nótt og látið nú vita af ykkur